Færsluflokkur: Bloggar
Bloggar | 18.9.2007 | 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eyjólfur:Mikil samkeppni um að komast í landsliðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 22.8.2007 | 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Var að velta því fyrir mér í tilefni af nýskipuðu jafnréttisráði skipuðu af ráðherra jafréttismála (sem er kona) að þar eru 6 konur en aðeins 3 karlar, hvaða jafnrétti er það ? er það virkilega þannig að jafnrétti á íslandi er á mannamáli aðeins kvenréttindi ?, langar að gá hvað menn segja um það.
Bloggar | 22.8.2007 | 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 16.8.2007 | 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 10.8.2007 | 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verð að viðurkenna að það er hálf hlægilegt hvernig sumir menn hlaupa út undan sér vegna hrakfara KR í boltanum í ár, það hlakkar þvílíkt í þeim að það hálfa væri nóg. En einn gengur samt lengst (Snorri Bergz) í hatri sínu eða minnimáttarkennd og óskar þess heitast að KR falli um deild, þá verði hann ánægður og sofi vel, ég verð að segja að slíkum mönnum er vorkunn.
Mér finnst aumkunarlegt að nærast beint á óförum annarra, það fer lítið fyrir manngæsku þarna.
Bloggar | 31.7.2007 | 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 24.7.2007 | 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Alveg er ég gáttaður á honum Birni Bjarnasyni og öðrum í Þingvallanefnd að ákveða að fórna hundruðum barrtrjáa í og við Þingvallakirkju og Valhöll, eingöngu til að komast á heimsminjaskrá hjá Sameinuðuþjóðunum. Mér skilst að trén þyki ekki nógu íslensk þar sem þeim var plantað fyrir 50-100 árum en eru ekki original eða þannig, en þá spyr maður sig hvaða tré hér á landi eru al-íslensk ? mér dettur bara Einirinn í hug af barrtrjám.
Einnig finnst mér skrýtið að heyra ekkert frá t.d. Skógræktarfélagi Íslands um málið, er þeim alveg sama eða hvað ? mér finnst alltof lítið af stórum og stæðilegum trjám hér á landi og er ekki einn um þá skoðun veit ég. Þetta eru flott grenitré sem fá að fjúka, tré sem eru fallega græn allt árið.
Gaman væri að fá álit fleiri á þessu.
Bloggar | 19.7.2007 | 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslenskur læknir í Svíþjóð Aðalsteinn Arnarson hefur hafið póstverslun á lyfjum til landsins, þarna er um mjög mikinn sparnað fyrir neytendur að ræða eftir því sem ég sá strax og því tilraunin mjög ánægjuleg og góður kostur fyrir þá sem þurfa að taka lyf að staðaldri.
En hvað skeður síðan, eftir að sjálfur landlæknir lýsti yfir því að honum litist mjög vel á þetta þá kemur opinbera stofnunin Lyfjastofnun fram með andmæli og aðfinnslur og reynir að stoppa þetta þarfa framtak, jafnvel þó forstjóri stofnunarinnar hefði líst því yfir í blöðum að væri innfluttningur alfarið á kennitölu viðtakanda þá væri ekkert athugavert við þetta, ekki veit ég hvað breyttist því Lyfjastofnun hyggst nú stöðva innflutninginn.
Er það virkilega svo að Lyfjastofnun ætli sér að verða óvinur neytenda hérlendis og standa með þeim aðilum sem í skjóli einokunnar okra svo á lyfjum til almennings að útlendingar hlægja þegar þeir sjá verðið ? svo er það kapítuli útaf fyrir sig að Apótekin Lyfja og Lyf og heilsa eiga orðið markaðinn hér og því ekki hægt að tala um nokkra samkeppni, einnig veit maður að lyf frá t.d. Actavis framleidd hér eru seld helmingi lægra verði t.d. í Kaupmannahöfn sem er óskiljanlegt.
Nú er lag fyrir nýjan heilbrigðisráðherra Guðlaug Þór að sýna nú úr hverju hann er gerður og gera þá undanþágu ef lögin um póstverslun lyfja banna hana í dag.
Bloggar | 14.7.2007 | 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar