Hvernig er þjóðfélag okkar að verða ?

Manni er farið að blöskra forgangsröðin hjá stjórnvöldum, á þá bæði við ríkisstjórn og ýmis sveitarfélög. Á sama tíma og sjúklingar á Landspítala eru látnir liggja frammi á göngum,  nírætt fólk á  elliheimili fyrir vestan er flutt yfir í næsta fjörð að því forspurðu, ríkisstjórn leigir einkaþotur til að komast á fundi erlendis af því að ráðherrar nenna ekki að bíða á flugvöllum eins og almenningur, tónlistarmaður ráðinn til borgarinnar án auglýsingar og fær tæpar 900 þúsundir á mán, 100 milljónir handa ungum frökkum til að æfa sig á þotur en flestir telja óþarfa og svo er það öryggisráðið og nokkrir milljarðar þangað, þetta sýnir að nægur peningur er til en forgangsröðunin er afleit. Hvað á þetta að ganga lengi ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband