einstefna og uppgjöf

Ég get ekki verið sammála erlendum þjálfara Snæfells að þeir geti borið höfuðið hátt eftir að skíttapa úrslitaeinvíginu 0-3, í mínum kokkabókum þýðir það að drulla upp á bak.
mbl.is Kotila. Getum borið höfuðið hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þotuleikurinn

Já þotuleikurinn heldur áfram, það er svo ofsalega gaman að ferðast á annara kostnað, nær væri að maðurinn færi að gera eitthvað í sínum málum hér heima þar sem allt er í rugli og stjórnin horfir aðgerðalaus á, já Dabbi sér um þetta allt.
mbl.is Geir hittir forsætisráðherra Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðalaus Geir í Kastljósinu.

Það var hálf undarlegt að hlusta á forsætisráðherra í Kastljósinu í kvöld, hann virtist úrræðalaus með öllu, ekert hægt að gera fyrir heimilin, fólk þarf bara að bíta á jaxlinn og vona að þetta lagist á næsta ári, og þó einhverjir missi íbúðir af því að lafborganir lána hækka svo rosalega þá verður bara svo að vera.

Hins vegar þegar minnst var á að ráðherra séu að leigja sér einkþotur eins og olíufurstar þá fékk karlinn málið og reyndi að bera í bætifláka fyrir eigið bruðl, allavega var ég ekki sannfærður á að þetta væri gert af sparnaði einum saman, væri ekki ódýrsat að sleppa ferðinni ?

Eitt langar mig að minnast á úr því engir peningar virðast til í svipinn til að létta álögur almennings tímabundið eða þá að viljann vantar, hvernig væri að loka eins og 4-5 sendiráðum og ná þar í nokkra milljarða ?  

 


Dæm sala á meistaraverk.

Er ekki málið bara að við eigum ekki nógu hæfileikamikla söngvara til að flytja þetta gamla meistaraverk The Beatles ?, í það minnsta langar mig ekki til að fara þó ég sé  gamall aðdáandi fjórmenninganna frá Liverpool og eigi allar þeirra plötur.
mbl.is Íslendingar fúlsa við meistaraverki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur Sig. hvað ?

ÉG var mjög hissa að lesa í blöðunum  að Dagur Sigurðsson hafi ráðið sig í vinnu sem landsliðsþjálfari Austurríkis fram yfir árið 2010, er þetta ekki örugglega sami maður og hafnaði HSÍ og sagðist ánægður í starfi hjá Val og ekki á leið þaðan, en hvað breyttist , snerist þetta llt um peninga ? svona mönnum er ekki hægt að treysta.

Mun Morgunblaðið biðjast afsökunar ?

Mér finnst ansi illa komið fyrir gamla góða Mogganum sem var eitt sinn blað allra landsmanna og blað sem maður gat treyst nokkuð vel jafnvel og þrátt fyrir íhaldskrumluna og tengslin við Sjálfstæðisflokkinn.

Eftir stöðugar árásir blaðsins á Dag Eggertsson fyrrum borgarstjóra í sambandi við stólaskiptin og fleira þar sem hamrað var á því að Dagur hefði m.a. verið sá aðili sem hefði farið fram á að Ólafur F. framvísaði læknisvottorði eftir erfið veikindi sín er nú hið sanna komið í ljós.

Það var fyrrum skrifstofustjóri borgarinnar sem krafði Ólaf um læknisvottorð að sögn samkvæmt venju eftir þetta langa fjarveru, þetta hefði Morgunblaðið átt að kanna betur áður en þeir réðust að fyrrum borgarstjóra. En nú er spennandi að sjá hvort Morgunblaðið mun draga í land og biðja Dag afsökunar á frumhlaupi sínu, nú ef ekki þá glatar blaðið trúverðugleika sínum og kannski enn fleiri áskrifendum ? 


Fljótfærni eða heimska ?

Get ómögulega skilið þau orð Péturs aðstoðarþjálfara Óla Jó að þessi riðill sé frábær fyrir Ísland, en samt eigum við enga möguleika á að komast áfram, hvað er þá svona frábært, erum við með bara til að vera með ? þarna virðist Pétur vera á einhverju einkaflippi og segist hlakka rosalega til að komast á sinn gamla heimavöll í Rotterdam, en starf hans er að reyna að koma okkur af botninum þannig að menn hætti að hlægja að okkur. En getur nokkur svarað þessu; frábær dráttur fyrir okkur en enginn sjéns ?    

Ólafur þjálfari ánægður þrátt fyrir stórt tap.

Ekki byrjar það vel með nýjum þjálfara ég segi nú ekki annað, og hann er ánægður með hugarfar leikmanna sinna þrátt fyrir slátrun 0-3 á Parken, er maðurinn ekki að grínast eða lifir hann í sama fílabeinsturni og Eyjólfur ' 
mbl.is Ólafur: „Ánægður með hugarfarið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handvömm lögreglunnar ?

Í sambandi við hörmulegt morð á Sæbrautinni í fyrra þá er núna að koma í ljós að meintur morðingi hafi getað keypt skotvopn í verslun í Reykjavík án þess að vera með eða framvísa byssuleyfi eins og lög gera ráð fyrir (þetta er ekki usa) . Þarna eru mistök bæði hjá verluninni svo og skotvopnadeild lögreglunnar sem er mjö alvarlegt, hvernig getur þá lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins neitað að tjá sig um málið við fjölmiðla eins og gerðist í dag  það er mér hulin ráðgáta ? 

Þetta tap er skandall.

Þessi úrslit í kvöld eru þau verstu  síðan 14-2 leikurinn í Köben í den það er pottþétt. Lichtenstein er ríki með um 30.000 íbúum rétt meira en t.d. Hafnarfjörður svo dæmi sé tekið og leikmenn liðsins eru úr neðri deildum evrópu sem fáir þekkja, en við þykjumst vera með leikmenn úr efstu deildum evrópu en þeir geta minna en ekkert þegar út í leikina er komið.

Legg til að Eyjólfur segi af sér strax á morgun og ksí ræðu þegar við t,d, Óla Jó fyrrum þjálfara FH, það mundi spara leiðindisem oft verða við uppsagnir, liðið sekkur dýpra og dýpra undir stjórn Jolla og hann hefur því miður ekkert sýnt að hann sé góður þjálfari, enda með enga reynslu af slíku þó hann hafi verið afburða leikmaður, það fer bara ekki alltaf saman. 

Þá má gagnrýna var landsliðsins, sumir eru með fasta áskrift án þess að sýna nokkuð og er ég t.d. þess fullviss að Stefán Logi sé mun betri markvörður en Árni Gautur sme átti að verja að minnsta kosti tvö markanna á móti lettum, hef ekki séð mörkin í kvöld ennþá.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband